Forsöngur:
Drögum upp gjallarhorn, Kylfurnar og piparúða,
Öskrum á galdranorn, mótmælendur niður skrúfa
Rýmið svæðið og fariði frá. Hér sé næði og ekkert má
Hraunum yfir vini, mokum djúpa gjá,
Jarðýtu á svæðið og lögguna á stjá
Malbikum yfir allt, engu skal hlífa,
Tekin verður dýfa og skítinn burtu þrífa
Hrægammar og hýenur, kroppandi líkið,
Óstöðvandi sírenur, lögregluríkið
Sparka í fábjána, lýðurinn grátandi,
Ómar skal handjárna og draga burtu öskrandi
Alin upp í góðæri, grafin í volæði
Klístraður og blóðstorkin, náfölur og skuldbundin
Bolað út í kuldann, með skuldina á undan
Almenningur reiður, réttarkerfis dómara bleyður
Viðlag:
Í gjallarhornið hann syngur, einn risastór kleinuhringur
Í burtu með liðið, drullið ykkur frá
Allir sváfu á verðinum undan helvítis merðinum
Heiðrum peningaskolla, Sem láta fólk borga vegatolla
(Forsöngur)
Undir þumlinum kremur, borgara eins og skepnur
Alþingi sefur, þegar aðallinn stelur
Fámenna klíkan, forréttinda píkan
Óstöðvandi sírenur, Hrægammar og hýenur
(Viðlag)
Í gjallarhornið syngur hann, þið skulið færa ykkur frá
Takið eftir! Ykkur er hér með lögum samkvæmt, skipað að færa ykkur
Nú draga þeir upp piparúðann, í augun ykkar munuð fá
Dragið upp piparúðann, mundið kylfurnar
Í gjallarhornið syngur hann, þið skulið færa ykkur frá
Mokiði þessu pakki í burtu! Drullusokkar
Nú draga þeir upp piparúðann, í augum brennur lítið bál.
Við líðum ekki svona vanvirðingu gagnvart okkar hæstvirtu,
hæstvirtu pólitíkusum
Í gjallarhornið syngur hann, þið skulið færa ykkur frá
Murkiði lífið úr þeim
Nú draga þeir upp piparúðann, í augun ykkar munuð fá
Vinstrifylking, sjáiði aulana á hlaupunum