Get all 4 Bootlegs releases available on Bandcamp and save 35%.
Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality downloads of Ekki Fyrir Viðkvæma, Live 2006, Bootlegs, and WC Monster.
1. |
Gervigleði er ógleði
01:34
|
|||
Verður þér óglatt – hlustar á útvarpið
Þarft ekki að gubba – heyrir bara suð
Gervigleði er ógleði - Helvítis ógleði
Flissandi fávitar - Þeir leynast alls staðar
Hvaðan er þessi hamingja – alltaf að bíða
Allir að mata þig – alltaf að plata þig
Gervigleði er ógleði - Ógeðis ógleði
Raulandi hálfvitar - Eru alls staðar
Sólo
Fastur í gildru – vilt ekki losa þig
Leiddur í Bylgju – Björt og brosandi
Gervigleði er ógleði - Eilíf ógleði
Endalaust tuð - Ógleði
Góðan daginn – Allir á lappir
Ertu ekki hress – brosa brosa
Vaknar með skitu – Rétt nærð á kamarinn
Allir svo hressir – mannlegir brestir
Gervigleði er ógleði - Helvítis ógleði
Flissandi fávitar - Leynast alls staðar
Gervigleði er ógleði - Ógeðis ógleði
Flissandi fáviti
|
||||
2. |
Fullur á Facebook
03:02
|
|||
Ó, nei... hvað varstu nú að tjá þig
Gastu ekki hamið þig
Ert endalaust að rífa kjaft
Fullur á Facebook
Þetta er eintóm drulla
Og núna skeist þú uppá bak
Allir eru brjálaðir
Fullur á Facebook
Viðlag:
Nú hefur komist upp um þig
Öllum langar að drepa þig
Fordómar og þröngsýni
Fáránlegar skoðanir
Hélst að þú værir óhultur
En nú sjá allir sem einn
Þú þarft að blása í blöðruna
Áður en þú ferð í tölvuna
Æ..æ.. vaknar upp við vondan draum
Þunnur og óglatt
En það er engin afsökun.. því þú varst
Fullur á Facebook
Núna ertu orðin aleinn
Prófæll orðinn vinarlaus
Skaðinn er skeður
Fullur á Facebook
(Viðlag)
Sólo
Ding dong... fjölskyldan er brjáluð
Og síminn er óstöðvandi
Aldrei aftur
Fullur á facebook
Gengur meðfram veggjum
Með buxurnar á hælunum
Hefðir ekki átt að vera
Fullur á facebook
(Viðlag)
|
||||
3. |
KúkurPissOgÆl
01:28
|
|||
Á þingi er safnað sér fötum af skít
Úr pontunni dreifist svo sorinn
Brosandi keypt á laun landið með krít
Í bústöðum hýsast á vorin
Drullu þau safna í rosalegt fjall
Svo standa öll og míg uppí vindinn
Úr fjarska svo heyrist eitt ógurlegt kall
Þar forsetinn brölt hefur tindinn
Í ræpunni syndir um brosandi pakk
Fínn pappír hann flýtur í drullu
Þegnum með maskínu breytt er í hakk
Með græðgi hún knúin og keyrð er á fullu
Mykjunni mokað er upp í þinn trant
Skola svo niður með horbjóð
Við barm hyldýpis oss stillt er við kant
Í svartholið hverfur svo heil þjóð
Á þingi er safnað sér fötum af skít
Úr pontunni dreifist svo sorinn
Brosandi keypt á laun landið með krít
Í bústöðum hýsast á vorin
Drullu þau safna í rosalegt fjall
Svo standa öll og míg uppí vindinn
Úr fjarska svo heyrist eitt ógurlegt kall
Þar forsetinn brölt hefur tindinn
Í ræpunni syndir um brosandi pakk
Fínn pappír hann flýtur í drullu
Þegnum með maskínu breytt er í hakk
Með græðgi hún knúin og keyrð er á fullu
Mykjunni mokað er upp í þinn trant
Skola svo niður með horbjóð
Við barm hyldýpis oss stillt er við kant
Kúkur piss og æl
|
||||
4. |
Bootlegs fyrir börnin
03:07
|
|||
Á meðan börnin úti leika sér
Og þjóðfélagið rúnkar þér
Þá skaltu ekki örvænta
Því við erum aftur komnir á stjá
Vertu hress og glaður
Ekki gjörsamlega sigraður
Nýr dagur er byrjaður
Bootlegs fyrir börnin
Viðlag:
Syngjum um augun, ruglum og raulum
Eitthvað um götustráka
Af svörtum sauðum, göngum af dauðum
En samt við elskum alla
Hækkandi kollvik, og smá skalla
Pass‘ekki í Henson galla
Áfram með sönginn, með þessum aulum
Hlustum á gamla kalla
Ef þú skilur ekki lengur neitt
Drullaðu þér samt fram úr
Því við höfum ekki neinu gleymt
Drekkjum heiminum í glimmer og glassúr
Ef þér verður á í messunni
Komdu þér þá úr klessunni
Nýr dagur er byrjaður
Bootlegs fyrir börnin
(Viðlag)
Sólo
(Viðlag)
Um bláu augun, við ennþá raulum
Líka um götustráka
Af svörtum sauðum, göngum af dauðum
Áfram við elskum alla
Hækkandi kollvik, og meiri skalla
Fitt ekki í Henson galla
Áfram með sönginn, við munum alltaf vera
Bottlegs fyrir börnin
|
||||
5. |
Tribute to thrash
02:16
|
|||
We’re gonna do our part to keep the scene alive
Trying to kick some ass, push metal up your ass
Stir up a lot of noise, dig up our roots at last
Show you some attitude, coming from the past
Chorus:
Show us respect and do a stage dive
Lend us your hands and give us high fives
Head-bang your soles into the overdrive
The only time that you will feel alive
Not getting younger so you better listen well
Remember all the times that put us through hell
Still we’re trying hard, got nothing to sell
So push up the volume, till you’re sick and unwell
(Chorus)
Solo
(Chorus)
Another flashback hits us in the head
The things we used to do seamed buried and dead
But still we’re shovelling, digging up the past
So much unravelling remembering at last
(Chorus)
|
||||
6. |
Eitur naðra
02:50
|
|||
Í hvert skipti sem þú mælir
Er alltaf einhver sem ælir
Og ef þú opnar á þér trýnið
Þarf að loftskipta rýmið
Ef heyrist ögn til þín
Og ef hlýtt er á þitt mál
Þarf sál þá að hreinsa
Og kasta á opið bál
Viðlag:
Æi hættu að tala
Og gefðu mér ró
Inn í mér er lagst í dvala
Partur af mér sem bara dó
Alla liggjandi þú sparkar í
Og með orðunum særir
Yfir þér er þrumuský
Rignandi sýru sem bræðir
Viðbjóðurinn frá þér flæðir
Nærist á volæði
Skömm og skítur í hæstu hæðir
Í burtu með þig, þó fyrr væri
(Viðlag)
En nú sést vél í gegnum þig
Illur þefur langar leiðir
Tekst ekki lengur að plata mig
Engan aftur þú meiðir
Haltu þér fjarri, ég skora á þig
Langt í burtu, sem betur fer
Annars mun einhver missa sig
Í gröf þig setja, ofan í hver
Þú ert eiturnaðra
Öllum stundum, 9 til 5
Ávalt ruslið að blaðra
Myrkvuð sál, eitruð og dimm
(Viðlag)
|
||||
7. |
Gjallarhorn
04:48
|
|||
Forsöngur:
Drögum upp gjallarhorn, Kylfurnar og piparúða,
Öskrum á galdranorn, mótmælendur niður skrúfa
Rýmið svæðið og fariði frá. Hér sé næði og ekkert má
Hraunum yfir vini, mokum djúpa gjá,
Jarðýtu á svæðið og lögguna á stjá
Malbikum yfir allt, engu skal hlífa,
Tekin verður dýfa og skítinn burtu þrífa
Hrægammar og hýenur, kroppandi líkið,
Óstöðvandi sírenur, lögregluríkið
Sparka í fábjána, lýðurinn grátandi,
Ómar skal handjárna og draga burtu öskrandi
Alin upp í góðæri, grafin í volæði
Klístraður og blóðstorkin, náfölur og skuldbundin
Bolað út í kuldann, með skuldina á undan
Almenningur reiður, réttarkerfis dómara bleyður
Viðlag:
Í gjallarhornið hann syngur, einn risastór kleinuhringur
Í burtu með liðið, drullið ykkur frá
Allir sváfu á verðinum undan helvítis merðinum
Heiðrum peningaskolla, Sem láta fólk borga vegatolla
(Forsöngur)
Undir þumlinum kremur, borgara eins og skepnur
Alþingi sefur, þegar aðallinn stelur
Fámenna klíkan, forréttinda píkan
Óstöðvandi sírenur, Hrægammar og hýenur
(Viðlag)
Í gjallarhornið syngur hann, þið skulið færa ykkur frá
Takið eftir! Ykkur er hér með lögum samkvæmt, skipað að færa ykkur
Nú draga þeir upp piparúðann, í augun ykkar munuð fá
Dragið upp piparúðann, mundið kylfurnar
Í gjallarhornið syngur hann, þið skulið færa ykkur frá
Mokiði þessu pakki í burtu! Drullusokkar
Nú draga þeir upp piparúðann, í augum brennur lítið bál.
Við líðum ekki svona vanvirðingu gagnvart okkar hæstvirtu,
hæstvirtu pólitíkusum
Í gjallarhornið syngur hann, þið skulið færa ykkur frá
Murkiði lífið úr þeim
Nú draga þeir upp piparúðann, í augun ykkar munuð fá
Vinstrifylking, sjáiði aulana á hlaupunum
Í augun hraunavinir fá
|
||||
8. |
Fórnarlamb tískunnar
02:55
|
|||
Ert þú með rétt lærabil?
Tveir puttar, svona hér um bil
Eins og gothari í hvítum kjól
Stígvélum arkar um í heitri sól
Nú liggur þú alvarlega slasaður eftir slæmt tískuslys
Heimurinn skellihlæjandi, og gerir af þér gys
Grænn í gær en rauður í dag
Litaspjaldið var þitt fag
Inn í dag en út á morgun
Keyptir nýju fötin keisarans
Viðlag:
Nú liggur þú alvarlega slasaður eftir slæmt tískuslys
Heimurinn skellihlæjandi, og gerir af þér gys
Þarft að leggjast inn á gjörgæslu en þar er löng bið
Drukknar undan eigin hégóma, lifnar aldrei við
Sólo
Í sprautuklefa fyrir fólk
Kúkabrúnn í röngum tón
Þar sem skapahár eru glapráð
Ertu kvíðandi fórnarlamb tískunnar
(Viðlag)
|
||||
9. |
Kjörkassasvín
04:29
|
|||
Þú fátæka sál
Ert feldur í neyslubál
Bítur á agnið
Aftur og aftur
Um ókomna tíð
Siglir blint í þokuský
Þegar kjörkassa svín
Krýnd eru á ný
Þau dansa og hoppa
Á fjögra ára fresti
Svo eru tjöldin dregin fyrir
Og skríllinn sofnar á ný
Sólo
Og ekkert hefur breyst
Það mun tíminn leiða í ljós
Þetta er sami skíturinn
Bara í nýjum fötum
Öll svo fljót að gleyma
Og allir svo hissa
Ný bóla að byrja
Sem springur aftur framan í þig
Þau dansa og hoppa
Á fjögra ára fresti
Svo eru tjöldin dregin fyrir
Og skríllinn sofnar á ný
Þetta samviskulausa pakk
Má brytja niður í hakk
Það veður yfir þig
Á skítugum skónum
Þau voru komin af öpum
En urðu svo að svíni
Því undir fínum fötum
Leynist skítugt grísa trýni
Allir dansa og hoppa
Á fjögra ára fresti
Tjöldin dregin fyrir
þá skríllinn sofnar á ný
|
||||
10. |
Poser
03:03
|
|||
Intoxicated and out of control
The joke is all on you
Animal mind, reward, money, food
You got the urge to eat
You better dive in, alien pray
Behaviour in the wild
So dry up your land, leave no crops behind
Extermination
Chorus:
Media controls the mass. They wanna stick it up your ass
Harvesting what’s ever left, no imagination
So dig up your mind and hope you will find
Your remains and save your behind
But wanting to stay, then you decay
The market needs, consumer bleeds
Death to posers
Everything turns out to be
Completely nothing at all
Exterminate your brain cells
Happy puppy that you are
Hammer down on the hard stuff
Your joy is turning into fear
You can look, but you can’t touch
No treats for the underdogs
(Chorus)
Solo
(Chorus)
Downloading death into your mind
One size fits all
The pain you feel will burn you out
Unlike what you felt before
Return to your maker in the rubble of filth
And wait for your rebirth
Find a brake to regroup
Life happens to everyone
(Chorus)
|
||||
11. |
Haleluja
04:16
|
|||
Stríðandi fylkingar berjast og berjast
En hver þeirra skyldi hafi rétt fyrir sér?
Ég skal ekkert um það segja
Veit barasta ekki rassgat um það
En eitt veit ég þó
Að heimsfriður seint muni nást með því
Kærleikur er enginn í stríði
Bara hatur sem sálirnar steikir og brennur
Viðlag:
Saklaus þú fæddist inn í þennan heim
En breyttist svo þegar þú varðst einn af þeim
Mataður af rugli úr lygasagnaheimi
Og nú saman þú syngur með kór....
Halelúja
Sólo
Maðurinn mjög seint hann lærir.
Í blindni hann reiðina nærir og fæðir
misgjörðir allar hann felur
því Kristur þær allar senn fyrirgefur
Sakleysingjar með geislabaug
þau trúa og krjúpa við heilaga krossinn
Að enginn var upphafsblossinn
og við aldrei komin af öpum..!!
(Viðlag)
Bassa Sólo
Þú skalt ekki hafa neinar skoðanir
Gerðu bara eins og þú lofaðir
Samt villt þú svíkja og pretta
En mannorðið helst ekki sverta
Í nafni trúar drepum konur og börn..
Skjótum þau niður í ofstækisvörn
Því allir þeir trúa í blindni
Að þeirra guð sé sá eini rétti
Smalinn af hjörðinni skítinn þrífa skal
Við helgiathöfn hvern sunnudag
Við altarið blæðandi þegnarnir krjúpa
Þá glottandi fellir hann sinn heilaga dóm
Í vímu með kyrjandi kór
Halelúja
|
||||
12. |
SOD III
01:18
|
|||
Why don’t you
Cut your hair and buy new clothes from fancy Jackson
Go to a club, become a snob
And then you may with us play
Become one of us, Become one of us
Become one of us, Become one of us
|
||||
13. |
Ó Reykjavík
02:04
|
|||
Ó Reykjavík, ó Reykjavík, þú yndisfagra borg
Með feita karla, fínar frúr og hrein og falleg torg
Ó Reykjavík, ó Reykjavík með þjóðarhetjurnar
Forseta á Alþingi og félagsmiðstöðvar
Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík,
Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík
Ó Reykjavík ó Reykjavík, þú gleymir rónunum
Liggjandi og ísköldum í blómabeðunum
Ó Reykjavík, ó Reykjavík með unglingunum
Stressuðum og útþynntum hjá félagsráðgjöfum
Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík,
Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík
Ó Reykjavík, ó Reykjavík, með gamalmennunum
Staflað eins og sardínum á elliheimilum
Ó Reykjavík ó Reykjavík, þú yndisfagra borg
Með feita karla, fínar frúr og hrein og falleg torg
Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík,
Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík, Reykjavík
|
Bootlegs Reykjavík, Iceland
Bootlegs is a old school Thrash Metal band from Iceland.
Formed in 1986 and are now back with new material and is ready to show how Thrash Metal should be done.
Streaming and Download help
If you like Bootlegs, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp